<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, október 10, 2007

Við erum að tala um það að Eunise þvoði þvottinn minn - fulla körfu - í höndunum í dag af því að þvottaefnið fyrir þvottavélina var búið! Ok, hún hafði náttúrulega aldrei snert þvottavél áður en ég kenndi henni á mína en vá, mér er alveg sama!! Langlangflestir þvo jú allt í höndunum hér, og trúa því að vélarnar skemmi fötin. Sem hlýtur að vera bara fínt tekið tillit til þess að flestir hér eiga aldrei eftir að eiga fyrir slíku munaðartæki.

Í höndunum folks, í höndunum. Árið 2007.
Og það er allt skínandi hreint og fínt og lyktar vel.

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker