föstudagur, september 14, 2007
Viva Nica!
Ég var að koma úr latínódansinum mínum eftir nokkuð frí. Þeir eru nú búnir að kaupa vararafstöð svo við dönsum ekki lengur í myrkrinu og það er búið að leggja gettóblasternum sem gekk fyrir batteríi fyrir svaka græjur sem setja enn meira stuð í tímana. Núna sé ég mig í speglunum og ég get svarið það hvað ég er orðin þokkalega góð! Mjaðmirnar hristust vel í takt við bachata tónlistina og salsasporin mín koma orðið nokkuð eðlilega. Ég þarf reyndar enn að vinna aðeins í því að ná að hrista brjóstin svona svakalega hratt eins og maður sé að vinna á loftpressu, en það kemur. Oh, þetta er svo gaman. Viva Rithmo latino!
Ég kom vel sveitt heim og var þvílíkt happí yfir því að það var rafmagn. Skrúfaði frá sturtunni og ... þá var ekkert vatn!
Það er þriggja daga frí framundan en þjóðhátíðardagur Nicaragua er á laugardaginn 15. september og það er líka haldið upp á 14. september, daginn áður. Já, það dugar ekkert minna en tveir dagar til að tjútta. Þann 14. fór síðasta orustan fram og þann 15. var lýst yfir sjálfstæði frá Spánverjum. Við ætlum að keyra suður til San Juan Del Sur á ströndina og taka þátt í hátíðarhöldunum þar. Viva la playa! Ég er nú þegar búin að kaupa fána á bílinn, húsið og fyrir Veru en nú þegar lýsa bláir og hvítir litir, einkennislitir landsins, í formi blaðra og fána út um alla borg. Þetta verður stuð.
Svo er gaman að segja frá því að Eunise sæta vinnukonan mín gapti þegar ég sagði henni frá fyrsta tímanum hjá tannsa sem er á þriðjudaginn kemur. Við kæru lesendur náðum sem sagt að safna fyrir tönninni og gott betur en það! Muchas gracias mis amores - Viva Eunise!
Og gleðilega helgi - Viva Nicaragua!

Comments:
Skrifa ummæli