<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, september 06, 2007

Takk 

Takk lesendur nær og fjær fyrir frábær viðbrögð við þessari litlu söfnun sem ég hef staðið fyrir undanfarið. Hingað til hafa safnast 62.500 krónur og það er sko heill hellingur hér í Nicaragua. Ég bjóst í alvörunni ekki við þessu en mikið er ég glöð. Og fólkið hér mun sko njóta þessara framlaga ykkar. Í botn. Svo takk fyrir það.

Ég sagði nær og fjær. Ég sé á trackernum sem ég er með á síðunni að hingað á síðuna koma reglulega inn lesendur frá hinum ýmsustu stöðum. Ég þekki ekki fólkið á Reyðarfirði, Bifröst, Brekku, Stykkishólmi eða Vík og hvað þá Kópaskeri. Og eins þekki ég ekki mörg nöfn þeirra sem lagt hafa pening í söfnunina. Eins sé ég reglulega lesendur til dæmis í Malawi, Uganda, Boston, Sidney, Turku, London, Frechen í Þýskalandi og Malmö fyrir utan vini mína í Nice, Cairnes í Ástralíu og Odense. Mikið svakalega er gaman að því hvað þið eruð dugleg að lesa sögurnar mínar héðan. Einstök innlit á síðuna, fyrir utan reloads, eru á bilinu 150 - 250 á dag og fyrir utan það að hafa bæði þvílíka þörf og áhuga á að tjá mig skrifandi skrafandi þá hvetja þessar tölur mig líka áfram. Svo takk líka fyrir það.

Þetta var takkblogg dagsins.

Ég þakka gott hljóð!

Áfram, meira, aftur...

E

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker