fimmtudagur, september 13, 2007
Ástkær fósturjörð
Ég sá fréttir í dag á mbl um krapa á fjallvegum og frestað flug til eyja vegna veðurs. Veturinn er augljóslega að koma heima brrrrrrr... Svona veðurfréttir eru svo fjarri mér hér í 33 stiga hitanum og sólinni.
Axel bróðir minn er jeppastrákur og fjallakall.
Ég þykist nú vera fjallakona líka, eða var það a.m.k. áður en Vera fæddist. Ég elska náttúru og hvað er fallegra en íslensk náttúra - sérstaklega þegar þú ert langt í burtu frá henni!
Auk þeirra mynda sem hér má sjá vil ég benda ykkur á jeppasíðuna hans ef þið viljið sjá fullt af flottum myndum af íslenskri náttúru úr sumarfríinu hjá Axel, Guðrúnu Lind og Stelpu (neðst á síðunni þeirra).
Ég sat hérna slefandi þegar ég fletti í gegnum þær, úff hvað Ísland er fallegt (í sumarfríi í góðu veðri og hita = 1 vika) Myndirnar eru margar teknar frá óvenjulegri sjónarhornum heldur en maður er vanur þar sem bílnum þeirra finnst skemmtilegast að vera uppi á jöklunum og fjöllunum...

Bergvatnsá og jökulá nætast í Núpsstaðaskógi - þetta hef ég sjálf séð með berum augum

Sandstormur
Neineinei, fjarri því að ég sé með heimþrá en Ísland er jú alltaf bezt í heimi. Ætli ég verði ekki að segja líka í krapa og byl...áts.
Ah, best að fara aðeins út í sólbað.
Comments:
Skrifa ummæli