<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, september 05, 2007

Níkapabbinn 

Pabbinn er mættur til Níka.

Við Vera fögnum því að sjálfsögðu og erum nú þegar búnar að taka hann á rúntinn í borginni og sýna honum ströndina. Pabbanum er heitt og hann vill helst vera inni í viftunni eða með hausinn inni í ísskáp, en þetta venst. Það venst líka segir hann að þurfa ekki að gera neitt nema hugsa um sjálfan sig og svo barnið eftir hádegi þegar leikskólinn er búinn, en það er þónokkru að venjast þar sem maðurinn er vanur að reka margmennt fyrirtæki í þeim fjöruga bransa húsasmíða.

Pabbinn er jákvæður og er staðráðinn í að njóta tímans eins og við Vera höfum gert hingað til. Þetta verður námskeið í slökun þótt það sé nú þegar búið að blæða í kort í gymminu. Þar er líka sundlaug og þar hafa feðginin haldið sig á daginn og ég get svarið það ef Vera er ekki bara orðin nokkuð vel synd eftir heilu og hálfu dagana með pabba í lauginni.

Eunise heimilishjálpin okkar hafði orð á því við Gerði um daginn að Viggi væri þvílíkur faðir. Hann hugsaði virkilega vel um dóttur sína og hefði virkilegan áhuga á að leika við hana. Þá gæfi hann henni að borða og honum væri alls ekki sama hvað hún borðaði. Andlitið ætlaði svo víst af henni þegar pabbinn fór að greiða í tíkó og flétta hárið á dömunni. Já, Eunise hefur hvorki átt svoleiðis pabba og ekki dóttir hennar Islene heldur svo það er ekki að furða þótt hún furði sig á nútímalega íslenska níkapabbanum. Vera og Viggi gera það gott saman á daginn eftir leikskóla og svo nýtur fjölskyldan tímans saman eftir vinnu og um helgar. Bara svona næs&ísí - níkastæl.


V+V

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker