fimmtudagur, september 13, 2007
Camoapa
Ég fór í vettvangsferð til Camoapa í síðustu viku með Gerði. Camoapa er í um tveggja tíma fjarlægð frá Managua. Tilgangur ferðarinnar var að taka viðtal við bæði aðstandanda mæðrahússins þar í bæ sem og framkvæmdastjóra heilsugæslunnar. Viðtölin fóru fram á spænsku og Gerður ofurtúlkur aðstoðaði mig við að skilja spænskuna til hlýtar.
Ef þið lásuð fréttablaðið á laugardaginn var 7. sept. má sjá afraksturinn í formi umfjöllunar um árangurinn af starfinu (bls. 28).
Eftir viðtölin röltum við um bæinn sem er hinn krúttlegasti og ég reyndi að fanga stemminguna með myndavélinni.
þessi lagaði hádegismatinn okkar - quesillas- með listalega þjálfuðum hreyfingum. Minnti mig á kappann á Bæjarins bestu bara þarna var það tortilla, ostur, laukur og chillísósa
stúlka að selja
Camoapa kúreki - ótrúlega flottur, með útvarpið sitt að sjálfsögðu sem er mikilvægasti miðillinn
Comments:
Skrifa ummæli