<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, september 05, 2007

Afleiðingar Felix 

Það er smá stress í mér í dag.
Ábyggilega af því það er allt í steik hér í Nicaragua eftir Felix. Reyndar ekki hérna megin hjá mér heldur hinu megin á ströndinni við Karabískahafið. Fólkið þar fær mestu rigninguna, öflugasta vindinn og svo fara fellibylirnir þar yfir á fellibyljasísoni. Sem er núna. Fólkið sem býr þarna megin er það fátækasta í landinu. Svæðið er erfitt yfirferðar og samfélagið í sveitunum nokkuð frumstætt að mörgu leyti en það eru fyrst og fremst þessar hörmungar sem dynja reglulega yfir sem viðhalda fátæktinni og hindra alla uppbyggingu. Það þarf alltaf allt að byrja upp á nýtt.

Fréttir dagsins herma að nokkrir hafi látist af völdum bylsins en þær tölur eiga án efa eftir að stíga. Það er í raun ekki neitt samband við svæðið sem er rafmagnslaust og símasambandslaust með öllu. Yfir átta þúsund heimili eru eyðilögð og langflestar skólastofur á svæðinu horfnar. Vonandi hættir skólastarfið ekki bara með öllu, það er auðvelt að vera droppout þarna fyrir margar sakir og náttlega ekkert starf í gangi ef aðstöðuna vantar. Þá þurrkaðist byggðin á Miskito eyjum algjörlega út en þar bjuggu um 2000 manns. Hvort skerin séu ekki bara horfin, getur verið ef ég skil ruglingslegar fréttirnar rétt. Blessunarlega voru stjórnvöld nægilega tímanlega með á nótunum og fluttu fólkið á eyjunum í land áður en ballið byrjaði, en vissulega var hægt að undirbúa komu fellibylsins mun betur. Ennþá er um 100 manns saknað en þeir voru á bátnum sem hreinlega hurfu á leið frá Miskito eyjum og á land.

Það er búið að lýsa yfir neyðarástandi á svæðinu en það vantar allt, nauðsynjar og skjól. Vonandi að þjóðir heims taki sig saman og aðstoði.

Þetta land er svo skitsófrenískt að ég bara næ því varla.

Það er hægt að finna allt hérna, ríkasta ríkt fólk á Range Roverum sem búa í höllum með þjónustufólk hægri vinstri og svo fátækasta fólk af öllum fátækum sem berjast við fellibyli og missa allt það litla sem það átti á augabragði. Fólk sem rétt náði að búa sér til hús úr spýtum, mold og stolnum ryðguðum bárujárnsplötum, með hvorki rennandi vatn né rafmagn. Það bíður nú eftir að fá svart plast sent héðan frá Kyrrahafsströndinni til að geta hafst fyrir í neyðarbúðum. Þetta er jú ekki alveg sanngjarnt.

Og hér sit ég og skrifa um þetta- með nokkuð skrýtinn hnút í maganum. Það er rigning úti, meira en venjulega, en ekkert sem hefur svo sem áhrif miðað við Felix. Það rignir rosalega sums staðar í norðri og enn á ströndinn og allt í vatni, leðju og aur.
Já, afleiðingar Felix eru áhrifaríkar og alls konar.

Þetta eru myndir úr blöðunum í dag.


rafmagnið er allt ofan jarðar og það er allt í steik...



Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker