föstudagur, september 07, 2007
2 mánuðir í Nicaragua
Ég fór á fund í gær. Ég fór á nákvæmlega eins fund þegar ég var svo til nýkomin hingað. Þá hugsaði ég með mér hvað fundarherbergið væri nú sjöbbí og umhverfið óaðlaðandi, skildi nánast ekkert sem um var rætt, heyrði bara í háværri loftræstingunni, fannst vond lykt og fann klórbragð af vatninu sem boðið var upp á. Í gær fannst mér skrifstofuhúsnæðið hins vegar hreint og fínt, hugsaði með mér hvað það væri nú gott loft inni í fundarherberginu, heyrði ekki í loftræstingunni, fylgist vel með fundinum því ég skildi nánast allt og drakk vatnið með bestu lyst.
Þetta hlýtur að merkja eitthvað merkilegt!
Ég fer svo á annan og mun stærri fund á eftir og hún yndislega alvitra og fallega Gerður (ég hlýt alla vega að fá eitt gott prik fyrir persónulegt skjall og annað fyrir viðleitni) er búin að setja pressu á litla aumingja starfsnemann að taka niður punkta á fundinum. Já, þá reynir á. Ég er núna að glósa orð eins og aðgerðarplan, fjárhagsáætlun, beiðni, umsóknarferli, framlög, varasjóður, verkefnanálgun... spænska bransalingóið já. Svo verð ég bara flettandi í orðabókinni með annarri og pikkandi með hinni.
Será interesante...

Comments:
Skrifa ummæli