<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, júní 06, 2007

U beygjan 

Ég er með fréttir fyrir ykkur ef þið vitið það ekki nú þegar.
Neibb, ekki ólétt!

Þetta er bæði spennandi, flókið, erfitt og skrýtið.
Ég er að flytja úr landi í 5 mánuði frá 1. júlí - 1. desember - til .... haldið ykkur... Nicaragua!

Ég sótti um starfsþjálfunarstöðu hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands í byrjun apríl (meira í gamni en samt í alvöru) og fór í viðtal fyrir um 10 dögum síðan. Fékk svo boð um að þiggja vinnuna fyrir nokkrum dögum. Ekki mikill fyrirvari á hlutunum þar á bænum. Ég fékk vægt sjokk en sagðist að sjálfsögðu vera að fara. Það sóttu 197 manns um þær 5 stöður sem voru í boði og ég er ein útvalin. Ég er að vonum stolt af mér og læt þetta happ að sjálfsögðu ekki úr hendi sleppa enda trúi því að hlutunum hafi verið hagað svona af ástæðu. Ég veit líka að ég fór í mannfræðina af ástæðu.

Ég veit svo sem ekki mikið um málið annað en að ég er að fara og búin að fara í bólusetningu.Það er kynningarfundur fyrir starfsnemana í næstu viku og þá veit ég meira um verkefnin og annað. Maki og barn fer ekki með en mega heimsækja og eru ýmis plön uppi um þeirra heimsóknir og hvernig þetta mun smella farsællega allt saman. Ein yndisleg vinkona ætlar til dæmis að koma með Veru út í ágúst þar sem Viggi kemst ekki fyrr en í haust. Já, hún var alveg til í að taka sumarfríið sitt í Nicaragua og vera aupair hjá mér um leið - ég þvílíkt heppin þar.

Já, þetta er brjálæðisleg en skemmtilega spennandi skransandi u-beygja á lífið - og ég tek henni fagnandi. Þetta þýðir samt t.d. að ég fer ekki í sumarfrí með familíunni til Spánar og missi af brúðkaupi kærrar vinkonu ásamt því að geta ekki stutt mömmu í veikindum hennar. En svona er ein báran víst sjaldan stök.

Nicaragua hombre! arriba... og díos mio... eða hvernig maður segir þetta nú á spænsku - en spænskan mín er orðin dulítið ryðguð og þarf ég að nota júnímánuð í að éta í mig spænskuna. Ég keypti mér Linguaphone í gær sem á stóð: Speak fluent Spanish in 6 weeks for only 35 minutes a day! Ég lögsæki framleiðandann að sjálfsögðu ef það tekst ekki hjá mér. Ég veit líka lítið um Nicaragua enn sem komið er en þarf að afla mér upplýsingar um land og þjóð áður en ég fer. Mér finnst það vægast sagt spennandi verkefni að eiga eftir að vera hluti af þeirri vinnu að aðstoða þessa þjóð í erfiðleikum, hver sem þau eru. Ég veit að í Nicaragua er þó nokkur óstjórn og landið hefur orðið illa úti eftir náttúruhamfarir ásamt því að fátækt og spilling er mikil. Gerður Gestsdóttir er verkefnastjóri félagslegra verkefna á vegum ÞSSÍ úti í Nicaragua en hún flutti þangað í apríl. Hún bloggar af og til um land og þjóð á http://nicaragua.blog.is/blog/nicaragua/ ef þið eruð forvitin.

Ég var með hnút í maganum yfir þessu öllu yfir helgina þar sem það þarf að redda milljón hlutum til að dæmið gangi upp. En ég er skipulagssnillingur svo mér tekst þetta og nú þegar er ýmislegt sem mér fannst ógerlegt fyrir helgi að smella nú. Við ætlum að selja bílinn og ég auglýsi hér með æðislegan Volvó Cross Country (2001) til sölu - anyone? Og elsku motocrossarinn minn er líka til sölu - Yamaha YZ 2003, frábært hjól.

Þetta verður ævintýri og ég hlakka til en kvíði líka slatta fyrir. Það er svo lítill tími til stefnu! Mig hefur alltaf langað að prófa að starfa á þessum vettvangi og trúi sterkt á árangur í þróunarsamvinnu. Það er þessi ósk um jöfnuð á hvers kyns óréttlæti, fátækt og von um betri lífsgæði sem kallar. Þetta verður lífsreynsla og upplifun fyrir lífstíð og hvað gerist svo sem á 5 mánuðum hér sem maður myndi sakna?

Ég kem aftur 1. desember og þið látið mig vita ef þið eruð með einhverja góða Erlulega vinnu þá, en ég sagði einmitt upp í vinnunni minni svo það ævintýri er úti...

Ég sakna ykkar nú þegar!
Meira síðar.
Kv,
Miss Nicaragua

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker