<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, júní 07, 2007

Kvennahlaup - í Nicaragua? 

Fór út að hlaupa áðan í hádeginu og kafnaði næstum því. Ég er alveg dottin úr hlauparyþmanum mínum. Oh. En það þýðir ekkert að leggja árar í bát heldur halda áfram þar til ég svo hætti á toppnum í Kvennahlaupinu 16. júní nk. Já, það finnst mér ógislega kúl, að hætta á toppnum í KVENNAhlaupinu haha. Fá annan oversized bol til að sofa í og enn einn verðlaunapeninginn (úff ég á orðið svo marga). Og fílinginn og kannski bættan tíma.

Ætli það sé hægt að skokka úti í Nicaragua?

- sko án þess að villast og kafna úr hita. Veðrið núna er 23 gráður og rigning, enda monsoon...

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker