miðvikudagur, júní 06, 2007
Eirðarleysi og Akureyri
Ég hef ekki hlaupið í viku núna. Sjitt hvað ég er orðin eirðarlaus í kroppnum, hann iðar af löngun í hlaup. Ég er með sterk fráhvarfseinkenni í dag, sérlegan fótapirring og mér líður svolítið eins og líkaminn sé að linast upp í gúmmíslepjulegan búðing....
Já, er búin að vera bissí með stóru béi. Fjölskylduveikindi, Akureyrarferð og kórtónleikatörn meðal annars. Og ég hef ekki fundið svo mikið sem hálftíma á þessum tíma til að hlaupa.
En hér eru nokkrar myndir fleiri myndir frá Akureyri. Motocross og djamm nammm...

Vera er orðin vön því að leika sér á meðan mamman og pabbi crossa, hér er hún uppi á „fjalli“.
Vera: Mamma, ég er ekki hrædd við mótorhjól (rosa hávaði og daman orðin nokkuð vön, en verður samt stundums smá smeyk ef lætin verða rosaleg)
Mamman: Nei, ástin mín
Vera: Og ég er ekki heldur hrædd við ljón. Og ekki heldur við sjó (augljóslega doldið smeyk við þetta allt að peppa sig upp!)
Mamman: Nei, ástin mín, þú ert svo dugleg
Vera: Já. Og mamma, pabbi hennar Bríetar hann er sjómaður, en pabbi minn hann er mótorhjólamaður (voða stolt)!
Ég ætlaði að bæta við að hann væri líka ljónatemjari... en hætti við, enda daman bara tveggja ára.

Mamman að testa Kawann

Pabbinn Svarthöfði

Tilefni Akureyrarferðarinnar var að fagna með þessum tveimur hér að ofan - 35 ára afmæli þessarar þrusudömu ásamt því að fagna flutningi í nýtt hús norður í rassg...
Mér finnst líka mjög kúl að halda welcome-ræðuna á táslunum uppi á stól með ostaskera og Grand flösku í hendi - svona á að gera þetta!
Unni er hins vegar 25, voða krúttlegur og klár, soldið seinþroska með teina, en bara sætur (maður var svona þegar maður var 25 muniði)

Nokkrar góðar gellur voru á staðnum - Vala Miss Iceland, Lena Miss Rússland og Miss Nicaragua

Já, nákvæmlega og akkúrat svona ætla ég að vera...
Comments:
Skrifa ummæli
