sunnudagur, apríl 01, 2007
Til hamingju...
...Hafnfirðingar, Íslendingar og heimurinn allur með höfnunina á stækkun álversins í Straumsvík.
Vonum svo bara að íbúalýðræðið rokki enn frekar í Hafnarfirði og þessum niðurstöðum verði hlýtt í einu og öllu þrátt fyrir að það mjóaði munu. Ekki það, það eru held ég einhverjir fulltrúar búnir að samþykkja annað álver þarna við hliðina á, í Helguvík, en umræðan er hafin og ef þetta virkar svona er ég hæstánægð.
Ég hefði svo sem viljað leggja meira af mörkunum í þessari baráttu með Sól í Straumi en náði einungis að beita pennanum, sem virkaði vonandi eitthvað. Hafði því miður ekki tíma til að bera út og hringja út. Vá, er ég í alvörunni orðin svona græn að ég sé til í útburð og áróður á opinberum vettvangi? Jahérna. Spurning um að stofna strax samtökin Helgum Helguvík og halda áfram, þetta var svo gaman. Loksins alvöru aksjón í Hafnarfirði, ekki bara brandarar!
Núna þarf ég bara að vinna í því að fá mér græna flokkaða ruslatunnu, gerast svo grænmetisæta og hætta að ganga í kanínupelsinum mínum.

Comments:
Skrifa ummæli