sunnudagur, apríl 01, 2007
Sigurvegarinn ég
Liðin vika fór prýðilega fram og margir sætir sigrar unnir. Maður þarf ekki að fá medalíu til að muna sigrana, oft eru það þessir litlu sem gefa lífinu gildi (speki daxins).
Einn sigur sem ég get m.a. nefnt er að mér tókst ásamt dásamlegu föruneyti mínu í vinnunni að plana og starta 100 manna glæsilegri ráðstefnu. Með tilheyrandi stressi og mingli og hvítvínsdrykkju. Svo sigraði ég sjálfa mig í mínu öðru 10 km útihlaupi og bætti tímann. 52 mínútur í sól og logni. Þá vann ég sigur á nokkrum uppáhaldslögum í einkasöngtíma hjá Andreu í vikunni og get nú loksins orðið framkvæmt þau ansi vel. I´ve got the blues for you. Ég hlakka til lokatónleikanna sem ég mun samt aldrei í lífinu segja ykkur hvar og hvenær verða haldnir. Þá endurnýjaði ég kósí kynni við miðbæinn um helgina. Ég og gamla góða yndislega vinkonan sigruðum rauðvínsflöskurnar með glæsibrag og ræddum sigra og ósigra í langþráðu trúnókasti. Við tókum svona ekta miðbæjarsigurinn á þetta eins og í gamla daga, enda býr hún í miðbænum þar sem allir fínu pöbbarnir eru til að ræða svona sigra á.
Merkilegt hvað ég sakna alltaf miðbæjarhangsins.
Ég hlýt svo að hafa sigrað í kökuáti í páskaveislu áðan hjá móður minni sem vann stórsigur í kökubakstri. Annað eins hefur ekki sést síðan í fermingarveislunni minni. Þá sá ég leiksigurinn LEG í gærkvöldi og hafði gaman af.
Svo náttúrulega sigraði ÉG álverskosningarnar.
Til hamingju Erla perla - þú ert sannur sigurvegari.

Comments:
Skrifa ummæli