mánudagur, apríl 02, 2007
Blómarósin ég
Með vor í lofti, hækkandi sól og tilheyrandi birtu fer sumarfílingurinn af stað, ég lifna við og verð eins og mús í haga, kýr nýsloppin úr vetrarlöngum dvala í fjósi eða bara Erla perla í innilegum sumarfíling. Sko í búðunum. Flíkurnar í búðunum bara blómstra svo ilmandi æðislega og girnilega að það verður hættulegt að kíkja barnlaus í búðir. Alveg yndislegar þessar barnlausu búðarferðir, þvílík hamingja sem manni getur hlotnast á aðeins tveimur tímum, bara með sjálfri sér. Ég ætlaði bara í bankann í dag en missti mig lítillega og sjoppaði eins og ég ætti alla peningana í bankanum. Sá bara liti og gleði og keypti bara blómótt og skæra liti í takt við sumarið sem er sem betur fer alveg að koma. Mæli með þessu. Getur dimmri dimmu í dagbjart dagsljós breytt.
Ekki láta ykkur bregða ef þig sjáið mig tilsýndar og mistakið mig fyrir ilmandi fallegt blómstrandi sumarblóm - ég gæti hæglega farið yfir strikið í blómaþema vorsins. En sjáiði til, það er bara af því ég er að hrista af mér veturinn, ég hef alltaf verið hippi inn við beinið. Frjálsa og fallega vorblómatízkan fer mér bara svo vel því ég er einmitt svo falleg og frjáls.

Comments:
Skrifa ummæli