<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, apríl 05, 2007

PáskaPáskaPáska 

Já, ég á undir teppi í gærkvöldi með páskabjór og páskaegg og horfði á lýtalækningaþátt. Æðislega spennandi. Á meðan Viggi var að fagna páskunum almennilega, eins og á líklega að gera. Með Magna og bræðrum sínum í Sjallanum. Sjálf tók ég góða upphitun á páskana í gær heima hjá Andreu í vikulega söngtímanum, konan var í þvílíku blússtuði, enda blúshátíð í Reykjavík. I´ve got the blues for you baby. Hún bauð upp á rauðvín og var vel ilmandi skemmtileg eftir nokkra sjússa. Þeim mun meiri fílingur bara og við blúsuðum saman – önnur aðeins betri en hin. Ég fæ fílinginn svo beint í æð frá Miss Andreu og félögum á blústónleikunum í Fríkirkjunni á föstudaginn langa. Fyrir utan páskahangsið kærkomna verður það það allra heilagasta sem ég geri um páskana.

Ég er annars svo léleg í páskafræðunum að ég man ekkert hvað gerðist á þessum páskadögum. Jesú dó, fór upp til himna, birtist svo aftur en hvarf jafn óðum... og við bara borðum fullt af súkkulaði í tilefni þess og förum á tónleika.

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker