<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, apríl 04, 2007

PáskaPáska 

Það er komið eitthvað páskaeirðarleysi í mig. Ég er með flögrandi páskaunga í maganum. Jafnvel páskahænu. Þetta er svona tilfinning eins og ég þurfi að fara að byrja á vorhreingerningunni eða undirbúa páskamatinn. Ekki það að ég hafi samt nokkru sinni gert það fyrir páskana. Mér finnst páskaskraut almennt ljótt svo ekki ætla ég að skreyta sérstaklega fyrir þessa páska. Gult fer rauðhærðu fólki með hvíta húð ekkert sérlega vel. Nema páskaföndrið hennar Veru fer nú samt á flottasta stað í stofuna. Það samanstendur af illa máluðum pappahólk með álímdum tveimur fjöðrum og rauðri pappírsklessu sem á víst að vera goggur.

Ég held það sé ekki eftir neinu að bíða, ég ætla að byrja strax í kvöld að hamstra páskahollustuna - páskaegg og páskamálshætti og skola því niður með páskabjór.

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker