<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, apríl 10, 2007

Aksjonpáskar 2007 

Og hefst þá framhald af páskasögunni 2007.

Flughetjan ég flaug með Veru á laugardagsmorguninn til Agureyris - og það var eins og ég hefði aldrei gert neitt annað, stóð mig ekkert smá vel. Þarf að gera þetta oftar. Þar tók við páskadagskrá Norðurlandskjördæmis sem verður seint toppuð hvað aksjon jackson varðar. Já, það er alltaf stuð með Hafnarfjarðarakureyringunum okkar þeim Unna og Helgu og Viggi græjusjúki aksjonkappi alltaf til. Dagskráin hófst með fínu tjilli í Hlíðarfjalli með smá brettabruni inn á milli þess sem draga og ýta þurfti Veru á snjóþotunni. Hún prófaði að stíga á skíði í fyrsta sinn og dugði í heilar 8 mínútur eða svo þar til hún heimtaði snjóþotuna aftur. Góður árangur það. Færið var fínt og nú mega ríku bankarnir og Björgúlfur alveg fara að gefa Bláfjöllum svona flott snjóframleiðsluapparat eins og virkar svo vel fyrir Hlíðarfjall.

Páskadegi eyddum við á Kaldbaki að leika okkur á snjóþotu, snjóbrettum og snjósleðum í þvílíkt fínu veðri. Eftir helgina er ég næstum því farin að trúa þessu með norðurland og endalaust góða veðrið. Við fengum okkur páskaeggjaorku inn á milli þess sem við brunuðum upp og niður snjóbreiðurnar á sleðunum - þvílík tilfinning að vera á þessum snjófákum! Powerið og frelsið er algjört! Ég held ég sé að verða smá græjusjúk sjálf. Gott að eiga góða að sem eiga svona dótarí í bakgarðinum á Grenivík. Og jeminn, Grenivík - eigum við eitthvað að ræða það eða?? Grenivík er nú alveg upplifun út af fyrir sig. Víst var fallegt að koma þangað í góða veðrinu en hver velur að búa í greninu Grenivík? Okok, það er eitt ríkasta bæjarfélag á landinu með fimmtu stærstu útgerðina... og Kaldbak, en þá er það upptalið. Grenivík er 30 km frá Akureyri, algjörlega úr leið og það er ekki einu sinni sjoppa þarna. Ég held að ég myndi veslast upp og deyja í svona greni, en Grenivík er auðvitað mjög kúl fyrir þá menn sem vilja vera á sjó og konur sem vilja vera heimavinnandi í landi með ríkan kall. Pant ekki ég! En ég skal alveg eiga sumarhús og leiktæki í bakgarðinum þegar ég verð rík. En Kaldbakur var kúl og ábyggilega ekki margar eins og tveggja ára gellur eins og Úlfhildur og Vera sem hafa farið upp á topp á með snjótroðaranum og rennt sér svo niður á snjóþotu á fleygiferð ííííhaaaaaaaa....

Annar í páskum fór svo í drullumotocross og loks bílferð í bæinn. Eftir að hafa ekki getað jack shit á nýja motocrosshjólinu í drullubrautinni á Akureyri sór ég þess eið að leggja hjólið á hilluna. Ég varð alveg grenjandi fúl og svekkt út í það hvað ég var léleg og gat ekki keyrt og ákvað að gera þetta aldrei aftur. Alveg brjáluð. Alveg brjálæðislega þolinmóð líka. Kannski var ég bara orðin gjörsamlega græjusödd með öllu, eftir að hafa græjað allar græjurnar í græinu. Brautirnar fara jú að þorna með sumrinu og svona svo kannski ég sjái nú til með þetta með hilluna. En sjæse, ég var alveg lélegust í heimi þarna maður eins og mér tókst vel að þenja sleðann daginn áður. En það er nú leikur einn miðað við crossið - hva, ehh, maður má nú afsaka sig.

Lokapunkturinn á aksjonpáskum var svo settur á Bjarkartónleikum í gærkvöldi en mér finnst hún meira en mögnuð. Ég fann fyrir rebellnum í henni og hvort ef ekki væri hrár Sykurmolakeimur af einhverjum nýjum lögum. Kvennablásarasveitin var flott og dans-tekknó-útgáfur af eldri lögunum hennar var dúndur. Ég uppgötvaði að ég er án gríns að breytast í tekknóhænu í dansfíling á góðum dögum. Ekki það samt, ég hef alltaf fílað dans dans dans! Ég hef nú sagt það áður og segi það aftur að ég er ábyggilega síst til þess fallin að rýna í tónlist en þori samt að segja það hér með að mér fannst hún sem sagt ÆÐI. Og Hot Chip voru hot hot hot. Er þetta ekki flott rýni bara?

Aksjonpáskar 2007 fóru vel og fallega fram og ég fann ævintýralegt frelsið sem felst í fjölskylduleik í náttúrunni og góðum félagsskap.

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker