<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, mars 05, 2007

Victoria kann pottþétt ekki að hlaupa 

Sjö útikílómetros á fimmtudaginn og 7 í gær, á 35 mínútum. Alveg búin eftir það en ég hefði nú alveg skriðið 3 í viðbót ef ég hefði þurft. Innikílómetrarnir eru orðnir eitthvað ómerkilegri miðað við þá úti núna þegar ég kann orðið betur að hlaupa úti. Það er það sem telur í dag. Dans dans dans á háum hælum á föstudagskvöldið á Ímark hátíðinni innan um merkilega flott markaðsfólk tók skemmtilega á, dauð á laugardagskvöldið fyrir framan sjónvarpið. Náði samt að djúphreinsa höllina í hreinsikasti í þynnkunni á laugardaginn, geri aðrar djammandi húsmæður betur. Get bara ekki búið í skít.

Annars var Victoria Beckam víst að fá sér ný, betri og stærri brjóst a la Pamela Anderson. Og er nú eins og brún stöng í gegnum tvær melónur. Ég hefði alveg þegið hennar gömlu já takk, mínar melónur fara enn minnkandi á hlaupunum, þessar elskur. Hvaða, hvaða, já, mér finnast mediumstór og vel þrýstin brjóst bara flott! Djúsí melónur. En ég kann samt að hlaupa og ekki hún (eða eins gott að hún kunni það ekki).

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker