<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, mars 06, 2007

Stöðvum stækkun álvers! 

Ég held að ég hafi ekki áður verið með áróður á síðum þessara vefs en here goes. Þetta er dálítil lesning en holl í umræðunni og auðvitað verður erla perla að tjá sig.

Hafnfirðingar - látið heyra í ykkur og stöðvum stækkun álvers í kosningunni 31. mars n.k.!

Ég er Hafnfirðingur í húð og hár og hef alltaf verið stolt af því og það vita þeir sem þekkja til. Gæti jafnvel kallað mig Gafflara á góðum dögum en það er annað mál. Stolt mitt hefur hins vegar rýrnað þó nokkuð í þessari álverstíð sem nú ríkir. Sem betur fer fáum við að kjósa um álið til að mega enn eiga möguleika á því að vera stolt og sæl með bæinn okkar fallega og framtíð hans. Reyndar getur málið ekki eingöngu snert taugar Hafnfirðinga heldur alla íbúa á Stór-Reykjavíkursvæðinu þar sem um algjört mengunarferlíki er að ræða, verði af stækkun.

ÍSAL ekki sér á báti
Undanfarið hef ég lesið greinar frá starfsfólki ÍSAL, bæði í bæjar- og landsblöðunum, þar sem það lofar og dásamar ÍSAL sem vinnustað og notar það sem rök fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Hvernig mega það vera réttmæt rök fyrir þrefaldri stækkun á álbræðslunni að vinnustaðurinn sé góður? Ætla ég ekki efast um ÍSAL sem vinnustað, þeir fylgja lögbundinni jafnréttisstefnu og gera að sjálfsögðu vel við sitt fólk eins og nútímafyrirtækjum er von og vísa. Sem betur fer, þannig á það að vera. Það hins vegar réttlætir alls ekki stækkun álversins að hafa ánægt starfsfólk innanborðs. Málið getur ekki snúist um það hvort það sé gott eða slæmt að vinna í ÍSAL eða að þeir hafi alltaf gert vel við starfsfólk sitt. Það gera margir vinnustaðir sem betur fer og ÍSAL er alls ekki sér á báti hvað það varðar. Ef eitthvað er, hefur ÍSAL því miður verið hættulegri vinnustaður en margir aðrir, en vinnuslys og jafnvel dauðaslys algengari þar en almennt annars staðar.

Enginn missir vinnuna!
Rök hagsmunasamtakanna Hagur Hafnarfjarðar sem eru fylgjandi álversstækkun fara einnig virkilega yfir strikið að mínu mati í umræðunni. Að þeir dirfist að höfða til samvisku fólks á þann hátt að ef álbræðslan stækki ekki muni fullt af fólki missa vinnuna sína. Það eru hrein og bein rangmæli því það mun enginn missa vinnuna sína verði ekki af stækkun álvers. Álverið mun ekki hætta starfsemi sinni a.m.k. næstu 15 ár þrátt fyrir að stækkun verði hafnað eins og þeir sjálfir hafa ítrekað sagt bæði opinberlega og á umræðufundum. “Þetta er vinnan mín” segja þau og vonast til að snerta viðkvæmar taugar. En allir vita að þetta verður áfram vinnan þeirra næstu árin, sem og fyrirtækjanna sem þjónusta álverið að einhverju leyti. Samviskuleg rök sem þessi virka sem öfugmæli í huga þeirra sem betur vita. Ef stækkun álbræðslunnar gengur í gegn mun hins vegar skorta vinnuafl og ljóst er að það er ekki til nóg af Hafnfirðingum í að manna það heldur að þar þurfi jafnvel innflutt vinnuafl að koma til.

Heilsu fram yfir peninga
Fylgjendur álvers hafa einnig bent á hagræn rök máli sínu til stuðnings. Að bærinn muni sakna peninganna sem álverið greiðir í sjóðinn og að bæjarbúar muni finna fyrir því í þeim lífsgæðum sem við búum við hér. Staðreyndin er sú að frá álverinu í dag koma aðeins 1-2 % af tekjum bæjarins á ársgrundvelli. Og við lifum í blóma! Vissulega hafa þeir verið ötulir við að undirbúa jarðveginn fyrir sig og gefa peninga til íþróttahreyfingarinnar en peningar geta þrátt fyrir það ekki verið rök sem við hlustum á. Börnin okkar munu áfram stunda niðurgreiddar íþróttir þótt álverið stækki ekki og ljóst er að til eru fleiri stórfyrirtæki sem leggja listunum lið. Annars konar og minna mengandi starfssemi heldur en stærra álver á þessu svæði mun einnig greiða sín gjöld og skapa veglegan virðisauka fyrir bæinn. Að mínu mati felast lífsgæði í því að búa í heilsusamlegum bæ sem hugsar um framtíðina á heilbrigðan hátt en ekki í mengandi álpeningum. Tökum ekki hagræn rök fram yfir heilsu og hjartans mál.

Græðgi
Við gætum endalaust rökrætt peninga fram og tilbaka í álversumræðunni sem á öðrum vettvangi framkvæmda, en eins og ég sé þetta er græðgi lykilorð hér í þessari umræðu yfir það sem fylgjendur stækkun álvers kalla “hagrænan ávinning”. Það er græðgi ef Hafnfirðingar vilja sjá fyrir sér að sleppa við að greiða fasteignagjöld eða annars konar eðlilega gjaldtöku með tilkomu þrefalt stærra álvers og græðgi að hálfu álversmanna að vilja menga bæinn okkar enn frekar, bæði loft og sjónmengun. Við skulum ekki leyfa okkur að sakna peninga sem við höfum aldrei átt.

Græðgi er einn af löstum manneskjunnar og við verðum einhvers staðar að setja mörkin. Eigum við alltaf að segja já ef okkur eru boðin gull og grænir skógar hverju sem fórna þarf í staðinn? Það er til fullt af alls kyns vel reknum stórfyrirtækjum úti í heimi sem gætu þess vegna komið til Íslands á morgun og boðið marga flotta peninga leggjum við prinsippin okkar, heilsu, framtíð, siðfræðileg sjónarmið og hjartans mál til hliðar. Við verðum að stoppa þessa þróun strax, leyfum þeim ekki að vaða yfir okkur hversu mikið sem þeir bjóða og segjum stopp við þessari stækkun!

Stóraukin mengun
Ljóst er að ef af stækkun álvers verður mun mengun stóraukast. Gæði lofts í Hafnarfirði myndu stórlega minnka með stækkun álvers. Losun flestra mengandi efna frá álverinu meira en tvöfaldast eftir fyrirhugaða stækkun Alcan og það þrátt fyrir fullkomnari hreinsibúnað sem þeir upphefja til vegs og vega. Losun svifryks og gróðurhúsalofttegunda (CO2) mun 2,5 faldast miðað við losunina árið 2005 og losun brennisteinstvíoxíðs eykst einnig um 40%. Samkvæmt starfshópi sem skipaður var til að meta losun mengandi efna með stærra álveri verður mengunarlosun á sólahring eftirfarandi: 2.000 tonn af gróðurhúsalofttegundum, 9,3 tonn af brennisteini, eitt tonn af svifryki, og 700kg af flúor. Eftir stækkun verður losun gróðurhúsalofttegunda frá Alcan meiri heldur en frá öllum samgöngum á Íslandi! Þessi mengun hlýtur að skipta heilsu Hafnfirðinga miklu máli þar sem vindáttin dreifir menguninni yfir bæinn í 40 – 50 daga á ári.

Ferlíkið í anddyrinu
Sjónmengun verður einnig veruleg í fallega hrauninu okkar, en verði af stækkun verður þetta stærsta álver í Evrópu. Íslendingar þurfa þá að búa við það hafa risastóran álklump við inngang höfuðborgar sinnar, ekki sérlega smart í “hreinu náttúrunni” og með hreina vatnið.
Fulltrúi frá Alcan lýsti því yfir á dögunum að ef ekki væri nú þegar álver í Straumsvík kæmi þessi staðsetning ekki til greina fyrir nýtt álver sökum nálægðar við byggð. Því vil ég ekki trúa því að við samþykkjum að fá stærsta álver í Evrópu inn á dyramottuna til okkar. Alcan hefur án efa staðið sig ágætlega í starfsmannamálum og umhverfismálum hingað til, en að mínu mati á 460.000 tonna álbræðsla bara engan veginn eiga heima í Hafnarfirði. Að staðsetja svona risaálver bókstaflega inn í bæinn og borgina, og alveg við framtíðarbyggingarland Hafnarfjarðar, er algjörlega úr takt við heilbrigða þróun bæði hvað varðar nútímalegt byggðaskipulag, umhverfismál og heilsufarleg mál.
Hvað þá hjartans mál.

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker