<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, mars 01, 2007

Ég fixuð 

Fyrir rúmum 14 árum lentum við Viggi í árekstri. Þvílíkt hörðum árekstri. Það keyrði fullur fáviti yfir á rauðu og á bíl sem við vorum farþegar í. Ég man eftir mér uppi á umferðareyju, en þá hafði ég greinilega komið mér sjálf út úr klesstum bílnum. Ég fann strax að ég var dofin í hausnum og með verki í hálsi. Löggan sagði að það hafi verið okkur til lífs að það hafi verið hálka úti og bíllinn sem við vorum í skautaði í burtu við áreksturinn, marga hringi og endaði úti í móa. Alla vega. Við Viggi höfðum þekkst í heilar 3 vikur þegar þetta gerðist og ég man ennþá hvað mér fannst þetta hallærisleg sjón, að vera þarna öll í klessu saman í sjúkrabílnum he he. Á fjórða deiti eða svo til. Fyndið eftir á samt. Viggi tognaði í læri og mjöðm en annars var tiltölulega í lagi með okkur eftir þetta sem betur fer (ég fæddist sko svona skrýtin).

Nema hvað, ég gekk með hálskraga í um 2 vikur út af áverkum sem ég hlaut á hálsinn og svo lagaðist hálsinn svona þokkalega með tímanum. En samt aldrei alveg. Ég hef alltaf fundið fyrir þessu, bólgum og verkjum af og til. Þegar ég er að æfa mikið og vinna mikið í stressi. Þá man ég sérstaklega eftir mér í prófunum í bæði menntó og háskólanum að drepast í höfðinu og haldandi mér gangandi á sterkum verkjalyfjum. Þetta svona kemur og fer. Og þegar þetta er, þá er þetta ótrúlega vont og óþægilegt. Svona stöðugur og sterkur hjartsláttarhausverkur sem byrjar aftan á og færir sig fram... frekar óþægilegt og truflandi. Stundum hefur hausinn orðið svo þungur að mér finnst ég þurfa að halda við hann með höndunum! Crazy.

Svo núna undanfarið er búið að vera mjög slæmt tímabil með þetta háls og hausdæmi. Hausverkur á hverjum degi og ég að verða vitlaus þótt ég sé jú orðin vön þessu líka. Hef látið mig hafa þetta. Hörkugellan bara tekið þetta á hörkunni. Sem er kannski ekki svo sniðugt í mörg ár í viðbót svo ég ákvað loks eftir tiltal frá vinkonu að kíkja til manns sem stundar austurlenskar lækningar og biðja hann um að fixa mig. Hann hafði fixað hana með góðum árangri þótt hennar kvillar séu af allt öðrum toga.

Og þetta var vægast sagt spúkí reynsla. Ég var með þrusuhausverk þegar ég lagðist á bekkinn inni á læknastofunni. Hann sagðist ætla að jafna orkustöðvarnar í mér eftir að ég hafði útskýrt verkinn. Kallinn stakk svo nál í höndina á mér og ég fann hvernig verkurinn hvarf á núlleinni. Ég trúði þessu ekki. Hann hvarf STRAX með einni lítilli nál í hönd. Og ég sem er búin að berjast við þetta í mörg ár. Svo fékk ég aðra í fótinn og þá leið mér ennþá betur. Það kom svona doði yfir mig og ég fann hvernig hausinn léttist og ég varð normal aftur í hausnum (eða svona eins normal og ég get orðið!). Ég get svarið það, að það var eins og Almættið hefði bara mætt þarna inn í herbergið og stráð galdradufti yfir mig og abrakadabra... hausverkur farinn. Ekki það að ég trúi samt á það... ekki frekar en það sé hægt að jafna orkustöðvar með nálum! En nálarnar voru að virka fyrir mig og eitthvað magnað gerðist, það er ljóst. Þá nuddaði hann mig og kleip og meiddi og ýtti, teygði, togaði og hnykkti og ég varð eins og endurnærð manneskja á eftir.
Ný Erla perla með engan hausverk. Í dag finn ég reyndar pínulítinn hausverk, en það er kannski bara af því ég var dugleg sem aldrei fyrr í hádegishlaupinu mínu. En ég trúi á þetta og fer aftur í næstu viku til að dobble tryggja dæmið og jafnvel enn einu sinni til að gulltryggja. Svo ef þetta kemur aftur þá alla vega veit ég hvert ég leita.

Ég bara finn mig knúna til að dreifa þessum fréttum, því eins og ég trúði ekkert sérlega á þetta áður en ég fór, þá er þetta greinilega að virka fyrir mig. Af hverju var ég ekki búin að fara fyrr? Svo ef þú ert með óþægilega kvilla e-s staðar, prófaðu að fara til undradoktorsins Ríkharðs í Orkuhúsinu.
He can fixxxxxxxx you.

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker