þriðjudagur, mars 06, 2007
Vera á Karíus og Baktus
Vera fór í leikhúsið á Karíus og Baktus um helgina. Hún var voða spennt og hélt hún ætti von á einhverju sætu og ljúfu eins og Skoppu og Skrítlu í leikhúsinu um daginn. En það var nú alls ekki, mín var skítlafandihrædd allan tímann, sat frosin með puttana eins langt inni í eyrunum og hún gat. Þegar við komum út spurði ég hana hvernig henni fannst. "Vel" svaraði mín og bætti við "Karíus og Baktus aldeilis skrýtnir, mér fannst þeir leiðinlegir..."
Það gekk svo vægast sagt mjög illa að bursta tennurnar það kvöld, það mátti ekki minnast á tennur, tannbursta, tannkrem og hvað þá skrýtnu bræðurna tvo þá flippaði mín af hræðslu. Vildi ekki opna munninn til að hleypa þeim örugglega ekki inn...
Comments:
Skrifa ummæli

