mánudagur, febrúar 12, 2007
(köku)fyllerí
Hljómar vel! Samt er nú smá mánudagur í mér í dag eftir svona multiple fyllerí. Mánudagur til mæðu eða moldar eða hreinlega smá myglu. Eftir helgina já. Ég gerðist gallupari í anda á föstudagskvöldið þegar reunion með fyrrverandi vinnufélögum fór vel fram hér í höllinni. Svo var dansað undir morgunn uppi og undir borðum á Vegamótum sem virðist endalaust vera uppáhaldsdansstaðurinn minn. Laugardagurinn fór í svefn og skúringar og Vera ákvað að standa með móður sinni á meðan pabbinn var að krossast og lagði sig í næstum 3 tíma eftir íþróttaskólann. Já, við stelpurnar stöndum saman. Eftir svefn tók við barnaafmæli sem var bara alls ekki svo brjálað enda barnið að verða unglingur orðin 9 ára gömul. Hennar æðsta ósk er víst að fá að ganga í g-streng og fá hár á pjölluna. Jahérna, blessað barnið. Þegar ég var níu þá valdi mamma ennþá fötin á mig og mig kveið fyrir brjóstum og píkuhárum. Tímarnir eru augljóslega orðnir frjálslegri og ábyggilega bara sem betur fer. Í þessu afmæli bjuggu bæði tveir kettir og einn hundur ásamt ungabarni og var Vera mun uppteknari af þeim verum heldur en hinum börnunum.
Á laugardagskvöldið horfði ég á Borat. Snilld þótt ég hafi nú ekki endilega verið að kafna úr hlátri. Og bara spennandi að sjá þessa merkilegu stúdíu sem þarna fer fram í leiknum raunveruleika. Meira svona takk. Mulin Rouge stóð svo fyllilega fyrir sínu á sunnudagskvöldið á Sirkus þótt ég hafi verið að sjá hana í fjórða sinn. Þetta er svo klikkaðslega kúl ástarsaga að mig langaði næstum því að vera Satine sem deyr í endann.
Sunnudagsrúnturinn okkar var upp á Skaga þar sem ein góð fimmtíuogeinsárs frænka átti afmæli. Vera elskar að leika sér við eldri frændsystkini sín sem þarna voru og fór hún í alvöru feluleik í fyrsta sinn. Mamman fylgdist með af forvitni og sá að mín faldi sig ALLTAF á sama stað og uppáhaldsfrænkan, sætt hehe. Þarna bætti líka heldur betur á kökuafmælismæjónesveitingarnar frá því daginn áður og maður þurfti ekki heldur kvöldmat á sunnudagskvöldið frekar en kvöldið áður. Ég elska afmælisveislur namminamminamm. Hljóp bara þeim mun hraðar í ræktinni í dag. Ég tók 5 km að vanda á um 25 mín. og ég verð náttúrulega að skrásetja það að í dag hljóp ég í fyrsta sinn heilan km á hraðanum 13 km/klst. Ég vissi hreinlega ekki að ég gæti hreyft þessa löngu fætur svona hratt. Og jújú, ég var næstum því köfnuð og allt það en afmælin tvö voru mér hvatning ásamt því að ég er jú alltaf að æfa mig fyrir útihlaupin (sem hljóta að fara að halda áfram hjá mér). Þrátt fyrir almenna þreytu í dag stefni ég á mitt fyrst hádegisútihlaup í vikunni, jafnvel tvö ef veðrið leikur við mig.
Áfram ég. Um helgar og ekki.

Comments:
Skrifa ummæli