þriðjudagur, febrúar 06, 2007
Endalausir endurfundir
Það var ansi gaman að hitta alla gömlu góðu MH-ingana á föstudaginn var. Maður var í nefndinni og svona og gerði sitt besta til að þekkja liðið og hrista kvöldið saman. En þótt ég þekkti nú langflest andlitin þá þekkti ég nú ansi fá nöfn og var í þesari týpunni: "Hvað segirðu - hvað heitir þú aftur? Jaaaá, og hvað ert þú nú búin að vera að gera sl. 10 ár?" En það kom ekki að sök, hópurinn virtist ná vel saman og skemmti sér á Stúdentakjallaranum áður en hörðustu djammararnir enduðu á Celtic Cross. Já, þið lásuð rétt! Assgodi fínn staður fyrir eftir-á-endurfundi hehe, en ehh...það var víst röð alls staðar annars staðar. Hér má sjá nokkur MH-andlit, ef þú þekkir einhverja fleiri flotta MHinga en mig.
Aðrir endurfundir eru svo skipulagðir næsta föstudag, en þá verður hálfgert Gallupreunion með núverandi og fyrrverandi starfsmönnum. Í höllinni að sjálfsögðu.
Getur verið að maður sé orðinn gamall?
Aðrir endurfundir eru svo skipulagðir næsta föstudag, en þá verður hálfgert Gallupreunion með núverandi og fyrrverandi starfsmönnum. Í höllinni að sjálfsögðu.
Getur verið að maður sé orðinn gamall?
Comments:
Skrifa ummæli