þriðjudagur, febrúar 13, 2007
Russi
Þetta er hann Russ. Hann er breti. Samt svona smá íslenskur breti. Hann hefur komið svo oft til Íslands og dýrkar land og þjóð svo mikið að hann er nánast smá íslenskur. Hann kallar sig meira að segja Russi með i-i til að íslenska sig enn meira þar sem í hans eyrum enda flest karlmannsnöfn á i-i. Svo heitir hann líka Alderson að eftirnafni en hefur breytt því í AldersSon með tveimur essum, svona á íslenskan máta.
Russi er mesta krútt í heimi. Við hittumst á örlagaríkan hátt, eða við viljum meina það. Alla vega soldið sniðugan hátt. Ok, ég er í Nepal með Vigga, Elvu og Torfa á leið upp í Himalayafjöllin í langa gönguferð. Við erum í almenningsrútu. Rútan stoppar í einhverjum bæ á leiðinni og við þurftum að finna aðra rútu til að ferja okkur aðeins ofar þar sem gangan skyldi hefjast. Í þessum bæ voru nokkur hús og við sáum búð. Erum eitthvað að tala saman fyrir utan búðina og þá gengur Russ að okkur þar sem hann var augljóslega líka á leið í búðina og segir: Talar þú íslenskur?
Við urðum náttúrulega frekar hissa á því að hitta nokkuð illa íslenskutalandi breta þarna í miðjum Himalayafjöllunum en ræddum málin lítið eitt. Komumst að því að hann dýrkaði Ísland og hann væri að leggja af stað í sömu göngu og við með nokkrum vinum. Svo skildu leiðir þar sem við ætluðum að byrja á öðrum stað en hann.
Eftir um 10 daga göngu hittum við Russ og félaga aftur þar sem eitt okkar varð veikt og við þurftum að gera hlé á gönguferðinni í um 3500 m hæð. Og það kvöld var drukkið og dansað, svona eins og hægt er í slíkri hæð í skítakulda og myrkri! Þar héldum við áfram að kynnast og hlæjum enn að því þegar við komumst að því að Russ var eitt sinn kærasti frænda hans Torfa. Þvílík örlög! Jamm, Russi sæti er eðalhommi og Torfi mundi meira að segja eftir því þegar frændi hans var í hjartasorg út af Russ fyrir mörgum árum!
Þessar myndir eru teknar um helgina þegar Russ mætti óvænt á skerið og droppaði við í Firðinum á leið út á völl. Hann var tiltölulega nýkominn úr partýi hjá Kókó dragdrottningu og talaði mikið um Skjöld, Baldur og Felix vini sína. Jamm, hommasamfélagið á Íslandi er víst voða skemmtilegt segir hann. En hann elskar okkur óhommana líka og börnin okkar og við elskum hann. Og akkúrat núna langar okkur mest til að finna tíma og péninga til að skreppa til London og heimsækja kappann og djamma ærlega með honum þar...
Finnst ykkur hann ekki líkur Mel Gibson?!
Comments:
Skrifa ummæli
