föstudagur, febrúar 02, 2007
Bissí ég
Vera fór aftur á leikskólann í morgun eftir veikindin miklu. Hress og spennt, enda sparifatadagur í leikskólanum. Mikill munur að fá að koma prúðbúin í sparipilsi heldur en lummulega leikskólabúningnum. Sem við fílum samt (eða Vera, ekki mamman... :S ) Ég kvaddi Veruna í morgun fram til sunnudagskvölds, en foreldrarnir eru svo bissí í djamminu þessa helgi að hún fer í heillanga helgarpössun til ömmu Jónu og afa Sigga. Og Gínu voffa. Vera er sko alltaf að fara að passa Gínu, en ekki sjálf í pössun. Maður er orðin stór skiljiði.
Það er annar annar í dag, flott dagsetning fyrir endurfundi MH-inga sem útskrifuðust fyrir rúmum 10 árum síðan. Planið er sem sagt Stúdentakjallarinn í kvöld, þar sem ég fell í faðma og græt af gleði með gömlu skólafélögum. Dansa við slagara sem taka mann aftur í tímann, eins og Killing Me Softly með Fugees, Jump Around með House Of Pain og Smells Like Teen Spirit með Nirvana. Á morgun er svo skírnarveisla hjá litlum frænda og árshátíð Nýherja um kvöldið á Selfossi. Já, ég fæ að gista í fyrsta sinn á alvöru íslensku hóteli um helgina. Líka er þetta í fyrsta sinn í langan tíma sem ég er ekki að plana árshátíðina og læt koma mér á óvart sem er skemmtileg nýjung.
Sem sagt issí bissí mí.
Nú ég þarf að tilkynna tvær nýjar óléttur í vinahópnum. Það er hún Mæja pæja og Eva Dís skvís sem ætla að fjölga mannkyninu, önnur á Íslandi og hin í France. Alltaf ánægjulegt að heyra um Smjatta-óléttur. Því meira af okkur æðislegu því betra. Eva leyfir okkur fylgjast með sér og bumbunni frá Nice í gegnum linkinn hér hægra megin á síðunni og ég efast ekki um að Mæja verði orðin barnalandsmamma innan skamms (það gerist bara eitthvað fyrir hausinn á manni!).
Í lokin vil ég svo skrásetja það að ég fór ÚT að hlaupa í gær í þriðja sinn. Einn, tveir og ÞRÍR. Maður myndi halda að þetta færi nú allt að koma, en goddem hvað mér finnst þetta alltaf erfitt. Samt var hvorki rigning né rok í þessu hlaupi. Þetta hlýtur að fara að koma (þolinmóða ég). Gengur vonandi betur þegar ég get farið að keppast við tímann, þarf að verða mér úti um svona hlaupagræjur - úr eða eitthvað, sem hvetur mig áfram. Þetta hlaup var þó varla erfiðara heldur en að horfa á íslenska handboltalandsliðið tapa hvað eftir annað. Það er víst ekki nóg að vera bara sætur.
Ohhh, ég trúi því ekki.

Comments:
Skrifa ummæli