<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, janúar 05, 2007

Róbótinn ég 

Stundum finnst mér eins og ég sé vélmenni, og kannski sérstaklega að ég búi í svona vélmennaheimi. Fyrir utan það að sumir dagar eru einstaklega beisik og rútínulegir þá er stundum eins og ég sjái heiminn sem extra vélrænan og gervilegan í ákveðnum aðstæðum. Og þá skil ég hvorki upp né niður.

Til dæmis í Laugum núna um og eftir jól og áramót. Það virðist sem allir séu búnir að borða yfir sig og með móral yfir lafandi bumbum og linum lærum, ímynduðum undirhökum og þoli á þrotum, því workoutið er þvílíkt að annað eins hefur ekki sést. Ég gekk inn í salinn eins og venjulega milli jóla og nýárs, til í spriklið mitt eins og venjulega, en varð allt í einu skringilega starsýnt á heiminn þarna inni í salnum og upplifði mig sem vélmenni. Þarna voru öll hin vélmennin pökkuð saman í ólofti, á hlaupavélunum sínum, með eitthvað í eyrunum og eitthvað fyrir augunum. Hlaupandi á vélrænum hraða svitnandi sama svitanum og síðast. Allir þvílíkt að berjast við aftur hvað? - í þessum gerviheimi. Þið eruð kannski ekki skilja þetta enda þvílíkt bull í mér, en svona sá ég þetta allt í einu. Ég var mætt af vélrænum vana og sá vélræna ræktarlífið svona utan frá og var næstum snúin við því ég skildi ekkert í mér af hverju ég var ekki frekar uppi á Esju eða Helgafelli, uppi í Heiðmörk í náttúrunni í fersku lofti og alvöruheimi. En ég er vélmenni svo ég bara hristi hausinn og blikkaði augunum nokkrum sinnum og náði þessari sýn úr heilanum á mér og byrjaði á því sama og síðast.

Svo eru núna í gangi svona vélrænar setningar eins og gleðilegt ár og hvernig fannst þér skaupið? Fyrir utan hið almenna hvað segirðu gott og hvernig ertu búin að hafa það um hátíðirnar. Jú, þetta er auðvitað kurteisi líka, alveg eins og það er kurteisi við líkamann að halda honum í formi á vélum. Þetta er kannski spurning um að setja rétta blæinn í röddina? Eða svara einhverju frá hjartanu, þ.e. ekki vélmennahjartanu "ég hef það fínt" - "takk sömuleiðis"...

Markmið fyrir 2007: Að vera minna vélmenni þótt ég mæti í Laugar með því að skreppa líka oftar út í náttúruna og segja aldrei "allt fínt" við hvaðsegirðuspurningunni (úff hvað þá - það mun enginn spyrja mig ever again hehe).

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker