<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, janúar 01, 2007

Afrekskonan ég 

2006 er liðið. Bros, snökt, léttir, tilhlökkun og von.
Alveg ágætt ár.
Ég afrekaði margt merkilegt á árinu enda hægt að gera margt merkilegt á heilum 365 dögum ef maður skipuleggur sig vel eins og þeir sem þekkja til vita að ég er snillingur í.

Umbreytingar í lífi mínu hafa náð hámarki á einu ári. Í stuttu máli fluttist ég búferlum, skipti um bíl, byrjaði í nýrri vinnu, varð frú og náði þrítugsaldrinum, gerðist motocrossari og fór í sex góð utanlandsferðafrí á árinu. Auk fullt af skemmtilegum heimsóknum, þrítugsafmælum, tilefnislausum partýum (eru þau ekki oftast skemmtilegust?!), matarboðum, barnaafmælum, skírnarveislum, brúðkaupum, grillveislum og annars konar uppákomum svo ekki sé minnst á frábæran árangur Verunnar í þroskastiganum. Ef ég stikla á stóru má m.a. nefna eftirfarandi afrek sem standa upp úr akkúrat n ú n a þegar ég hripa þetta niður:

Janúar: Flutt inn í Álfahöllina. Reyndar kom baðherbergið mánuði síðar en annars stóð Viggi sig mætavel með verkið. Höllin var allt sem ég óskaði mér og meira til og okkur líður vel hér í 101 Hafnarfirði. Hafnarfjörður er Heima. Hvað sem miðbæjarþránni líður. Litlir, stórir, fátækir sem ríkir eru alltaf velkomnir í höllina. Drottningin lofar reyndar ekki heimabökuðu en bendir á að gestrisni er dæmd út frá fleiri þáttum...

Febrúar: Man ekki eftir neinu markverðu sem gerðist í febrúar. Ætli ég hafi ekki bara verið að raða húsgögnum í nýja húsið mitt og taka til. Koma mér í húsmóðurfílinginn í höllinni. Heyrðu jú, ég fullkomnaði ímynd mína með því að kaupa mér Volvó station... hei, hann er svartur – það er alla vega tsöffaralitur.
Og skellti mér á mitt fyrsta þorrablót. Lagði ekki í þorramatinn og tapaði brjóstaskorukeppni við tvær mjólkandi svilkonur mínar.


Nýbúin að skíttapa

Mars: Söng Mozart á tónleikum sem var engu líkt og skrapp til Köben á árshátíð með þáverandi vinnufélögum. Köben með slíku fólki er auðvitað engu lík.

Í Cosmo á Ketchup


Apríl:
Fórum til Kanarí með fjölskyldunni minni, æðislegt að upplifa hita og sól, sand og afslappelsi í miðjum vetri. Komst að því að Kanarí er ekki bara fyrir gamalmenni.

Vera á ströndinni
Ég fékk einnig að upplifa Dolly Parton í einn dag, með megabrjóst og alvöru stúdíósöng og allt. Gaman að prófa að hafa brjóst, en ég vissi nú svo sem alltaf að ég gæti sungið.

Ég, Dollý og THE boobís

Maí:



06.05.06. (vá, næstum því eins og Bubbi!) var flottur dagur. Ég varð þrítug og ánægð með það. Svo varð ég frú á sama degi. Ógleymanlegt stuðbrúðkaup aldarinnar fór fram með glæsibrag í sól og heiðskíru. Kirkjuathöfnin í Fríkirkjunni náði hámarki þegar ég fékk næstum hjartastopp af stressi fyrir einsönginn og ég sá Vigga fella (eða reyna að fela!) tár. Ég fékk Helgu Möller og Káta Pilta í brúðargjöf ásamt fullt af fínum listaverkum og öðru stofustássi. Og jesús minn stuðið – ræðurnar og dansinn og dýfurnar...

Júní: Ítalía Ítalía Ítalía!


Fór single í brúðkaupsferð með mínum ástkæru vinkonum. Amalfi ströndin var þrædd í sól og sjó súkkulaðigæjum og klikkuðum mat! Ciao amore, ciao amore, ciao amore ciao...!

Ég og Vesúvíus í sólbaði

Ég valdi mér nýja framabraut á vinnumarkaðnum og líkar vel í markaðsmálunum hjá Nýherja. Voðalega hefur maður gott af því að skipta um vinnu og læra eitthvað nýtt. Halda áfram og finna eldinn sinn aftur. Ég fann hann og er á galdrabrennu.

Júlí: Júlí var æðislegur. Þá var ég í sumarfríi með Veru. Við skelltum okkur til Stokkhólms í heimsókn til Skarpa frænda og fjölskyldu í 10 daga. Alltaf notalegt að heimsækja uppáhaldsfrænku sína og frænda. Það var mikið brallað í sól og sumri þótt börnin hafi barist og grenjað og látið eins og brjálæðingar allan tímann. Maður var endurnærður en uppgefinn um leið eftir fríið! Vera varð 2 ára úti í Svíþjóð og hélt Halldóra frænka flotta veislu þar fyrir dömuna. Þegar heim var komið héldum við svo heljarinnar tveggja ára afmælis-garden-partý í hitabylgju og sól, með pylsum, kræsingum og hoppukastala. Æðislegur og eftirminnilegur dagur.


Skarpi og Vera í Sverige


Fyrsta gardenpartýið

Í júlí var líka farið í fjölskylduferð með familíunni hans Vigga í bústaðinn Fell í Eilífsdal og með minni á Stykkishólm en þangað kom ég í fyrsta sinn og var mjög hrifin. Ég brettaði niður Snæfellsjökul og fæ fiðring í magann bara við tilhugsunina, og ég hét því þegar við keyrðum um nesið að ég skyldi komast upp á Kirkjufellið á Snæfellsnesinu áður en langt um liði og set ég það hér með á to do listann fyrir 2007.


Þetta er geggjaðra en það lítur út fyrir að vera...


Fjölskyldan Felli


Vera í Stykkishólmi

Í júlí var einnig haldið ógleymanlegt Gallupgellupartý í höllinni. Ég ætla aldrei að sýna ykkur vídeóið með Totally Eclipse of the Heart og hvað þá Crazy fatafelluvídeóið okkar úllalla...

...


Það var blómaþema...

Ágúst: Víglundur tók sér heila 5 daga sumarfrí og þá nýttum við í ferðalag norður, tókum Akureyri, Ólafsfjörð í heimsókn til sveitalúðanna okkar Kjartans og Svövu, Siglufjarðar á Síldarævintýri og á Mývatn til Unna og Helgu Hlínar. Fín ferð, Vindbelgur var sigraður í sól og hita með Veru á bakinu.
Vera hætti í ágúst alveg með bleyju og byrjaði á leikskóla. Leikskólakennararnir eru duglegir við að setja inn myndir á vefinn þeirra og mér finnst frábært að fá að fylgjast þannig með úr fjarska. Þetta eru jú börnin okkar! Sonja og Gestur runnu í eina sæng og urðu hjónakorn no. 3 í grúbbunni í svaka skemmtilegu brúðkaupi 19. ágúst.

Skvísur með meiru - Sonja brúður fyrir miðju


HjallaVeran í aksjon


Vindbelgirnir


September:
2. september er eftirminnilegur en þá sprengdi ég mig á reiðhjóli út um allan fjörð í ratleik á hinum árlega systkinadegi Helgasona, dætra og maka. Við Viggi unnum líka leikinn en vinningar deildust svo bróðurlega (hvað annað á degi sem þessum?) á milli í trampólínkeppninni, klifrinu, gryfjuboðhlaupinu, skotboltanum, tarsanleiknum og gólfæfingunum.

A. Helgason fékk hreina 10 fyrir gólfæfingar sínar
Ég man einnig að í september fékk ég gott menningarsjokk á mínum fyrsta landsleik í fótbolta. Sjokk og svekk, ekkert gaman æjæjæj... ég reyndi þó.
Ég gerðist mótorkrosspía no. 1 þegar hjólið kom sjóðheitt frá USA.


Í Sólbrekku

Október: var frekar tíðindalaus svona almennt séð. Það var þó nokkuð djammað, eitt brúðkaup, nokkur splittstökk hér og þar í glasi ásamt því sem ég man eftir rosalegum norðurljósadansi eina nóttina.

Nóvember: Sykurmolatónleikar sem voru vel sykraðir og sætir, snjóleikur með Veru á sleða og í englaleik og síðast en ekki síst brjálaða Barcelonaferðin til Betu bera hæst. Sem sagt, bæði sykur, snjór og sól í einum pakka – gerist vart betra.

Beta í BarcA (ok, ég skal gefast upp!)

Desember:
Jarðaberjamojito í Kaupmannahöfn og heimsókn til Óðinsvéa, vel heppnaðir jólatónleikar, sigur á 10 km á flottum tíma á brettinu og innganga í flottkonuklúbbinn Blautar að neðan og einn með kláða eru helstu desemberafrekin mín, að ónefndum tveimur svakaSmjatt&Sötr-djömmum sem eru eitt það allra skemmtilegasta

...

Ætli ég komi ekki alveg ágætlega undan þessu ágæta ári þrátt fyrir miklar umbreytingar og aksjón. Geðið er alla vega sæmilegt, líkaminn í fínu formi, móðirin ég er að massa the terrible two´s eins og hægt er, vinkonuvalsinn er í góðu svingi (þrjár óléttur og tvö brúðkaup á döfinni - geri aðrar flottar betur) og framabrautin er tiltölulega bein... Geri mér þó grein fyrir því að gæfan er ekki eingöngu falin í aksjóni og ljúfu stundirnar verða líka að lifa.

Ég hef ekki sett mér áramótaheit og kann ekki að byrja á því núna.
Árið 2007 er sem betur fer óskrifað blað (komdu mér á óvart!) en að sjálfsögðu eru þó nokkur markmið komin á blaðið.

Þeim sem tóku þátt í að gera 2006 að því sem það var kann ég beztu þakkir fyrir.
Án ykkar væri ég alls ekki eins slípuð, glimrandi, skínandi, fáguð og flott perla sem við vitum öll að ég er, lengst inn við beinið alla vega.

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker