<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, janúar 16, 2007

29 ára... 

God.
Ég var að koma úr afmæliskaffi frá einum vinnufélaga hér á hæðinni.
Svona í tjitttjattinu óskaði ég honum til hamingju með daginn og spurði hann um leið um aldur svona eins og gengur og gerist í ókunnugum afmælisboðum.

Hann sagði án þess að blikna: "Ég er 29 ára."
Og ég spurði á móti: "Og hvað ertu búinn að vera 29 ára í mörg ár?" og skellihló svo eins og hross - "hahahahahaha..."

"Bara einu sinni, bara núna sko" heyrðist þá muldrað í grey ellilega afmælisstráknum...

Og enginn hló. Nema ég...reyndi að bjarga mér með því að stinga upp í mig stórum kökubita.
Áts.

Ég meina, ég þekki það bara sjálf að sumir eru ekki að komast yfir það að vera þrjátíuogeitthvað!

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker