<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, janúar 16, 2006

Mission completed 

Eða svo til.
Það vita ábyggilega flestir sem hafa einhvern tímann flutt hvernig mér líður í dag.

Vel, en samt ekki. Er fegin að vera flutt og að þetta sé yfirstaðið en get alveg pirrað mig yfir kaosinni og klessunni sem er heima hjá mér og mun verða næstu vikurnar.

Fegin. Yfir því losna við bröttu Hverfisgötustigana, fjórar hæðirnar og brakið í gólfinu.

Eftirsjá. Eftir kósíheitunum og hlýjunni í Hverfisgötukofanum.

Ógeðslega þreytt. Eftir törn aldarinnar í pakkningum, málningu, lakki og barnapössunarplaneringum er ég búin á því. Er með harpsperrur eftir flutningana í gær og illa sofin síðastliðnar nætur þar sem maður er alltaf að nýta tímann eins og hægt er fram á nótt.

Nenni-ekki-meir. Vildi óska að þetta væri bara allt búið og allt komið á sinn stað og og og... Nú reynir á þolinmæði mína!

Samviskubit. Yfir því að hafa haft Veru alltof mikið í pössun til að geta unnið í húsinu og flutt og allt sem því fylgir. En það var samt ekki hjá því komið. Við hefðum lítið gert með dömuna með okkur og værum alls ekki flutt í dag hefðu hinir og þessir vinir og fjölskyldumeðlimir ekki boðist til að passa dömuna. Vera er vægast sagt orðin þreytt á þessu ástandi og er alveg ringluð yfir þessu nýja lífi í nýja herberginu sínu í nýja húsinu.

Tilhlökkun. Yfir því að allt verði reddí og fínt og flott og kósí og æðislegt í Álfahöllinni minni æðislegu.

Við gerum okkar besta til að halda gott innflutningspartý í febrúar. Pressa pressa.
Íha.

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker