fimmtudagur, janúar 05, 2006
Álfahöllin mín fín...
Já, það er allt á fffffullu í að græja og gera höllina tilbúna á mettíma. Ennþá er mikið eftir að gera á svo stuttum tíma. Við stefnum á flutninga um aðra helgi en þá skal skila kofanum á Hverfó. Ég er þegar búin að pakka ofan í hvorki meira né minna en 50 kassa og er þá ennþá slatti eftir hér inni og plús geymslan. Sjæt hvað maður á mikið drasl. Mér finnst samt svo gott að fara í gegnum dótið mitt. Gamalt eða nýtt. Að sortera og henda og skipuleggja. Maður tekur pínulítið til í sálinni um leið.
Það eru allir voða duglegir að hjálpa okkur (Vigganum) í höllinni sem og við barnapössun þegar einhver verkefni falla til þar fyrir mig. Já, ég er auminginn í fjölskyldunni sem kann bara að strjúka málningu ofurblítt á veggina. Vera heldur ábyggilega að við foreldrarnir séum búin að afneita henni þar sem hún rétt sér okkur á morgnanna og svo mig þegar ég sæki hana og hendi henni í pössun. Henni finnst þetta reyndar ekkert mál og bara gaman að hitta nýtt fólk og þá aðallega nýtt dót. Sem betur fer er daman mín svona dugleg, annars myndi ég ekki meika þetta. Ofurmúsin Vera er því alveg að spila sitt hlutverk alvarlega í þessum framkvæmdum.
En staðan er s.s. þannig að húsið var gjörsamlega gert fokhelt liggur við, allt rifið út og hent. Í dag er eldhúsinnréttingin komin upp að hluta (grunnurinn - restin kemur víst alltaf alveg síðast samkvæmt sérfræðingnum) það er búið að mála næstum því allt en eftir að lakka hurðar og karma. Baðherbergið er ennþá nokkuð hrátt á að líta...ehhh... það vantar s.s. allt inn á það að meðtöldu almennilegu gólfi og veggjum. Parketinu verður kubbað á um helgina og svo lakkað í kjölfarið vikuna á eftir. Þá má víst enginn stíga fæti inn í 3-4 daga...sem er soldið erfitt þegar svona mikil vinna er eftir. Mig vantar ennþá skápa og mun því líklega búa í ferðatöskum fyrst um sinn. Eins koma engar flísar fyrr en í lok mánaðarins svo það verður grátt eðalsteypugólf í anddyri og baðherbergi við flutninga.
Jamm, þetta er s.s. allt að smella og bjartsýnismaðurinn Víglundur er sallarólegur í kaosinni og stressinu og ætlar sér að massa þetta. Sem hann og gerir. Hann tæklar allt svo vel þessi elska :)
Hér fyrir neðan eru myndir af slottinu eins og það leit út í kvöld. Allt á fullu... (myndaforritið styður ekki íslenska stafi svo þetta er doldið brenglað og ég nenni ekki að breyta því af því ég er að fara að pakka oní kassa - hvað annað!)
Álfarnir dansa sko pottþétt í þessari höll á morgun þrettándanum!
Kv,
Erla álfkona

Stofan min fin

Comments:
Skrifa ummæli