mánudagur, janúar 02, 2006
Gleðilegt ár!
Áramótin voru mjög fín hjá okkur. Við eyddum kvöldinu hjá ömmu Gunnu og með brósa og fjölskyldu. Það var mjög næs. Við skruppum á brennu en Vera vildi ekki sjá að vera þar svo þetta var stysta brennuferð sem ég hef farið í. Hún var ekki að fíla sprengingarnar og lætin. Skaupið var alveg ágætt fannst mér, en mér fannst Björgvin Franz alveg fyndinn í gervi tónlistarmannanna, það er svona það eina sem ég man eftir (var svo full sko...iiiiiiiiiiiiiiiiii djók).
Nú, Vera var annars hin æðislegasta þetta kvöld, vakti til kl. 02 um nóttina án þess að verða svo mikið sem pirruð. Algjört ljós þessi orkubolti sem ég á. Á miðnætti brugðum við á það ráð að setja eyrnartappa í eyrun á dömunni og það bjargaði heilmiklu, en hún var orðin mjög spennt fyrir sprengjunum á endanum og horfði og hlustaði á ljósasjóið af svölunum á 3. hæð en við sáum yfir allan Hafnarfjörð.
Vera hefur reyndar eitthvað verið að dreyma sprengingarnar eftir þetta kvöld því hún vaknar upp í sífellu með ópum og segir "booom, bommm"! Greyið, hvað er maður búinn að gera við barnið! Á gamlárs lærði hún sem sagt að segja búmmm (sprengja) og ís! Já, það bætist stöðugt við orðaforðann en hún er farin að apa vel eftir manni. Ég er alveg að hafa mig alla við að trakka þetta hjá henni!
Ég er búin að vera í fríi með Veru á milli jóla og nýárs og þetta er búið að vera svo yndislegur tími. Svo mikill munur að fá að vakna í rólegheitum með henni og leika og læra allan daginn saman. En nú tekur rútínan aftur við. Mamman á leið í vinnuna á hádegi og daman í pössun...

Áramótaálfurinn minn

Comments:
Skrifa ummæli