<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, janúar 11, 2006

Allt að koma 

Álfahöllin er loks farin að breytast úr hinu mestu hreysi og eitthvað farin að líkjast höll. Það er búið að vera að vinna í henni nánast dag og nótt í dáldin tíma, enda húsið nánast gert fokhelt. Og þetta er núna allt að koma, enda ekki seinna vænna, við flytjum á laugardaginn. Baðherbergið á hæðinni verður þó enn fokhelt þar til í lok mánaðarins þar sem flotta flísapöntunin klikkaði. Það er einnig ýmislegt annað sem gengur fyrir en klósettið (ég meina hver þarf það?) - þar sem það er lítið klósett og sturta í kjallaranum sem við getum notað. Parketið er komið og það er algjörlega geggjað og sömuleiðis eldhúsið mitt. Og öll æðislegu ljósin og og og og og...

Við sem sagt flytjum á laugardaginn og skilum H6 á sunnudaginn. Það verður skrýtin tilfinning en ánægjuleg að sama skapi. Þetta hús hér er yndislegt og svakalega hlýlegt og sjarmerandi, en ég verð að segja að ég er komin með meira en nóg af stigunum hér og hlakka til að fá gólf sem ekki brakar í og opnara rými á einni hæð.
Allir þeir sem hafa ekkert að gera á laugardaginn kl. 14 mega endilega joina í flutningsteymið okkar. Bjór í boði!! (hlýtur að virka).

Þegar þessu er lokið (lýkur reyndar ekki strax um helgina... úff, allt draslið sem við eigum eftir að ganga frá og einnig smotterísreddingarnar hér og þar í húsinu...) ætlum við hjúin í Spa og nudd og gufu og nálarstungu og ná okkur aftur á strik eftir erfiða törn. Eins ætla ég að djamma doldið, alveg kominn tími á það. Innflutningspartý til dæmis - allir velkomnir. Jafnvel að ég fari líka eitthvað að hugsa um komandi brúðkaupspartý...

Party on.
Erla vinnuálfkona

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker