<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, janúar 08, 2006

Afmælisstrákurinn minn 

Viggi núverandi elskhugi og faðir og verðandi eiginmaður á afmæli í dag! Hann er orðinn 33 ára karlinn sá og ber sig vel miðað við aldur. Bumban er minni en í fyrra þótt eilítið hafi bæst í gráu hárin. En þau eru nú svo sjarmerandi svo bara meira af þeim takk fyrir!
Vigginn eyddi deginum að sjálfsögðu í Álfahöllinni en þar var hann að störfum við parketlagningar ásamt hópi valinkunnra aðstoðarmanna. Mamman og Veran komu með pakka og köku handa kallinum svo það varð smá míníafmælisveisla í dag. Í kvöld gerðust vinirnir svo svo elskulegir að bjóða okkur (ásamt 10 öðrum) í þvílíkan veislumat og gerðum við það bara að afmælisveislunni hans Vigga! Mjög hentugt að fá svona afmælisveislur upp í hendurnar - þetta eru sko almennilegir vinir sem við eigum :)



Pabbinn lukkulegi með dömurnar sínar Posted by Picasa

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker