<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Fyrstu skrefin! 

Vera tók sín allra fyrstu skref ein síns liðs í fyrradag við gríðarleg fagnaðarlæti foreldranna!! Jibbí jei og til hamingju! Þessi skref voru tekin heima hjá ömmu Gunnu en amman var nýbúin að kaupa góða skó til að læra að labba í fyrir Veru. Og það var allt sem þurfti, einn dagur í skónum góðu til að fyrstu skrefin væru tekin. Ég myndi segja að þetta hafi verið svona 2-3 skref, en Vera var að labba á milli mín og Elvu vinkonu og fattaði ekki að enginn hélt í hana. Svo stendur hún oft alveg sjálf svo jafnvægið er greinilega langt á veg komið. Svo er spurning hvenær næstu skref koma.

Svo fórum við í Húsdýragarðinn í gær. Vera missti sig yfir hestunum og eftir að ég hafði kennt henni hvað ho ho segir hneggjaði hún allan daginn. Og gerir enn þegar hún sér myndir af hestum eða þegar einhver spyr hvað ho ho segir. Svo segir hún "ba ba" þegar hún sér myndir af önd og kann að mjálma og segja "voff voff" þegar hún er spurð hvað kisa og voffi segja.
Já, það er alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi - þvílíkt spennó!

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir, m.a. síðan uppi í bústað hjá tengdó um verzló.


Vera er þekkt fyrir alls kyns óvenjulegar svefnstellingar en þessi hér held ég að slái allt annað út! Ahhhh hvað það er nú gott að sofa svona - NOT!
Eða hvað? Spurning um að testa þetta. Posted by Picasa

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker