mánudagur, maí 02, 2005
Að fílaða
Vera fór í fyrsta sinn í alvöru pössun til dagmammanna í dag. Var allan daginn svo að segja og það gekk víst alveg frábærlega að þeirra sögn. Var bara eins og ljós og ekkert minna takk fyrir! Mamman var ekki einu sinni stressuð í vinnunni á meðan að bíða eftir því að fá að sækja hana. Nei, ég einhvern veginn bara fíla þessar dagmömmur og treysti þeim. Ég er svo komin í 80% vinnu fram að hausti til að geta músast með músinni í sumar og sæki ég hana þá annað hvort hálfþrjú eða þrjú. Og þá er eitthvað eftir af deginum til að spóka sig.
Vera borðaði hvorki meira né minna en lifrapylsu með kartöflumús og rófustöppu í hádeginu hjá dagmömmunum og fannst það æði! Hún hefur tvisvar fengið lambakjöt hjá mömmunni og einu sinni hakk og spagó. Og svo bara hevví lifrapylsa! Já, hún er orðin stór. Farin að borða slátur og vera í pössun allan daginn.
Og að fílaða.

Comments:
Skrifa ummæli