<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, apríl 02, 2005

Mömmuheimsóknir 

Ég nýtti daginn í gær til hins ýtrasta, enda síðasti virki dagurinn í orlofinu (í þessari lotu!). Var eiginlega í desperation kasti yfir því að þetta væri síðasti dagurinn. Bara eins og ég væri að hverfa eitthvert langt á braut. Við Vera fórum því í tvær mömmuheimsóknir svona til að segja "bæj"...snökt. Nei, nei, þetta voru mjög gleðilegar heimsóknir eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan. Vinir okkar kíktu svo í mat og bjór um kvöldið og má því segja að þessi 1. apríl hafi verið ansi fínn dagur. Ég lét ekki gabbast af aprílgabbi pabbans og sá í gegnum nokkur önnur í fréttum. Ég er þá ekki búin að missa allt töts í þessu orlofi! Eða við skulum bíða með að fullyrða nokkuð þar til alvöru heilavinnan hefst.
Á mánudaginn.


Vera og Gabríel Snær Embluson. Gabríel Snær er rúmum 4 mánuðum yngri en Vera og er því 4 mánaða töffari. Posted by Hello

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker