<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, apríl 08, 2005

Dagur 5 

Dagur 5: Fínn föstudagur :)

Daginn byrjaði ég með því að fara í World Class. Horfði á útför páfa með öðru á meðan ég svitnaði góðum svita. Vinnan var róleg, geri ráð fyrir að dagurinn í dag hafi verið minn síðasti aðlögunardagur því framundan er mikið að gera. Ég held barasta að ég sé komin í gírinn. Við fórum í hádeginu í Borgartúnið til KPMG að borða, en fyrir þá sem ekki vita þá er ráðgjafarhluti KPMG í eigu IMG þar sem ég jú starfa. Matráðskonan okkar var í fríi svo það var ekkert annað að gera. Og þetta var geggjað. Dýrindismatur á 8. hæð með þetta líka þvílíka útsýni yfir hafið og Esjuna og Viðey og ég veit ekki hvað og hvað. Og þegar við svo fréttum í óspurðum fréttum að við (IMG) ættum mjög líklega að flytja af Laugaveginum og í Borgartúnið í þetta nýja frábæra húsnæði brosti ég breitt :) Ekkert smá flott. Eina sem er við þetta er að maturinn er svo góður að maður þyrfti að halda í við sig...

Eftir matinn tók meiri matur við. Við vorum tvær í vinnunni sem stofnuðum svokallaðan Sætaklúbb í Gallup þar sem við erum öll svo svakalega sæt. Samt kannski meira af því okkur langar í sætindi... Sætiklúbburinn felst í því að á hverjum föstudegi taka tveir aðilar sig saman og mæta með sætindi af hverri tegund sem er í vinnuna og bjóða hinum upp á. Í dag var það ís og meððí ásamt geggjaðri heimalagaðri marengstertu! Já, fólk er þvílíkt að taka þessu alvarlega!

Eftir vinnu var svo farið í BabySam, uppáhaldsbúð allra foreldra, og keypt sólhlíf á kerruna hennar Veru. Ekki seinna vænna, það eru bara 3 mánuðir í Krít!

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker