fimmtudagur, apríl 07, 2005
Dagur 4
Dagur 4: Rassálfur í rýni.
Krít er orðið að veruleika. Það er búið að bóka takk fyrir. Við förum þrjár fjölskyldur saman út og það verður æði. Bara finn það á mér. Byrjaði í WC af alvöru í dag og ætla að taka næstu 3 mánuði í að sjeipa mig fyrir bíkiníin og ströndina. Ekkert nammi á kvöldin og mikið vatn og salat og skyr. Hlýtur að virka eitthvað!
Hélt minn fyrsta rýnihóp í kvöld í vinnunni (thats what I do) eftir langt hlé og ég stóð mig bara ágætlega. Hef engu gleymt, eins og ég gerði þetta síðast í gær; Hvernig þá? Af hverju segirðu það? Geturðu útskýrt það aðeins betur? Hvers vegna? akkuru, akkuru, akkuru? Munið eftir rassálfunum í Ronju Ræningjadóttur???!!! Ha,ha...ég er hálfgerður rassálfur í rýnihópunum. Spyr og spyr og spyr. Akkuru?
Já, ég stóð mig ágætlega í rýninni miðað við að elsku amma Silla mín liggur þungt haldin á gjörgæslu í öndunarvél.
Ég veit að Guð og Englarnir passa hana eins vel og þeir geta.

Comments:
Skrifa ummæli