<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Dagur 2 

Dagur 2 í vinnunni var betri en sá fyrsti. Ég er svona að meðtaka þetta. Að ég sé ekki í heimsókn í vinnunni heldur komin til að vinna. Og að ég eigi yndislegt lítið kríli heima. Dagurinn í dag, eins og í gær, fór mikið í dagdrauma um sól og sjó og það stefnir allt í eina góða sólarlandaferð fyrir litlu fjölskylduna í júlí. Mér tókst þó að fara á einn fund og láta gott af mér leiða vinnulega þar. Eða það fannst mér. Eins og ég hefði engu gleymt. Hrósi hrós.

En að öðru leyti var ég frekar dofin.
Báðar ömmurnar eru nefninlega komnar á spítala. Amma Vala er búin að vera þar í 3 vikur með lungnabólgu en er að hressast. Súper amma Silla (sjá blogg sem heitir "Hún amma") var svo flutt upp á spítala í gær ansi veik. Ábyggilega veik í fyrsta sinn á ævinni 83 ára gömul, en hún var ansi slöpp þegar ég heimsótti hana í dag. Ekki lík sjálfri sér og mér fannst erfitt að sjá hana svona.

Svo er eitt ár í dag síðan afi Skarpi dó (sjá bæði blogg um afa Skarpa hér ("Hann afi minn") og hér ("Afi Skarpi")).

Það er svo scary þegar ömmur manns og afar fara að veikjast og falla frá.

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker