<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, apríl 04, 2005

Dagur 1 

Dagur 1: Nýtt líf í vinnunni. Ha, markaðsrannsóknir...hvað er nú það aftur??

Ég tók strætó í vinnuna þar sem Viggi ætlar að pabbast með Veruna á Landanum í orlofinu sínu. Strætó er ágætur. En af hverju má endalaust troða fólki inn í þetta ferlíki og af hverju má standa í strætó og sleppa því að vera með belti? Mamman orðin soldið prótektíf hér. Hvernig fer maður annars með lítil börn í strætó? Heldur maður á þeim og vonar svo að brjálaði strætóbílstjórinn sem keyrir alltof hratt og fer iðulega yfir á rauðu lendi ekki í því? Ég vonaði að það myndi ekki einhver vírdó setjast við hliðina á mér og var heppin. Það tyllti sér þessa fína kona við hlið mér og við kjöftuðum alla leiðina um börn og uppeldi. Að sjálfsögðu. Hún var reynd í bransanum.

Í vinnunni boraði ég mér niður með fartölvuna mína á eina lausa skrifborðið sem ég sá. Þar sat ég í heilan dag og fannst annað hvort eins og ég væri bara í heimsókn í vinnunni og væri aaaaalveg að fara heim, eða þá að ég hefði aldrei farið í frí og ætti ekkert barn! Heilinn er svona að meðtaka þetta. Galluparar buðu mig velkomna og ég kreisti fram brosið og takk. Besti parturinn af deginum var hádegismatur með stelpunum með tilheyrandi kjaftagangi. Ahh, ég saknaði þess! Vinkonurnar í vinnunni eiga eftir að halda uppi móralnum, enda æðislegar skvísur. Annars eyddi ég fyrsta "vinnu"deginum í að vafra um á netinu skoðandi sólarlandaferðir og skrifandi pósta til vina og vandamanna. Já, ég ákvað að vera bara súkkulaðikleina þennan fyrsta dag. Hmmmmm...hvort ættum við nú að dýpka mínusinn á reikningnum með því að skreppa til Salou eða Mallorca?

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker