þriðjudagur, mars 01, 2005
Vera stóra í Stokkhólmi
Verð að segja að þetta er hið besta húsmæðraorlof hér í Stokkhólmi. Maður er í góðu yfirlæti hjá stóru uppáhaldsfrænku sinni og fjölskyldu og hingað til hefur bæði verið mikið um hvíld sem og aksjón. Hér hef ég til dæmis lært að hekla eins og alvöru húsmæðrum sæmir en hún Dódó frænka er handavinnumeistari mikill. Ekki nóg að hún prjóni eins og meiníak heldur heklar hún líka eins og tryllt kona. Blóm og vettlinga og alls konar dótarí. Frekar kúl. Og ég lærði tæknina s.s. í gærkvöldi og er vonandi á leiðinni að verða kúl líka. Fyrir utan hekl og annað föndur höfum við rölt um gamla Stan eða gamla bæinn í Stokkhólmi í grenjandi yndislegri jólasnjókomu, borðað bæði elg og sænskar sjöttbullar, leikið heilmikið við Skarpa frænda og hreinsað út barnafatalagerinn í H&M. Hver veit nema á morgun verði skellt sér á tradisjónal sænska skauta hér á bæjarvatninu fyrir neðan þar sem mér sýnist nú á kuldamælinum mælast einar 20 gráður í mínus!
Helstu fréttirnar héðan eru nú samt þær að mamman er að rifna úr monti yfir Verunni. Gvuð hún er svo sæt. Og greinilega gáfuð líka. Hún er reyndar búin að vera í ágætlega stífum æfingabúðum hvað þetta varðar, en á sunnudaginn, nánar tiltekið þegar hún var 7 mánaða og 2 daga gerðust undur og stórmerki hér í Stokkhólmi.
Mamman spurði: Hvað er Vera stór?
Og daman rétti loks upp hendurnar :)
STÓRT Hejdå (eða eitthvað svoleiðis)frá Sverige!

Comments:
Skrifa ummæli