sunnudagur, október 07, 2007
Fátækrahverfi
Ég átti erindi í fátækrahverfi í vikunni sem leið.
Ég var búin að undirbúa mig og fullvissa mig um að þetta yrði varla svo hrikalega hræðilegt, enda hef ég alveg séð ýmsilegt á ferðalögum mínum um heiminn. En mikið svakalega var þetta ömurlegt og sorglegt. Ég hélt andlitinu á meðan á heimsókninni stóð en var algjörlega orkulaus á eftir. Ég vissi að svona væri til og að þetta yrði svakalegt, en samt var þetta verra en ég bjóst við.
Bara svo óumræðanlega vonlaust.
Þarna býr fólk af illri nauðsyn, á pínulitlum ólöglegum landarskika án allra pappíra um eignarrétt. Pínulítið er kannski 15-20 fermetrar og íbúar aldrei færri en 5-6. Fólkið sem þarna neyðist til að búa verður sér úti um fjögur prik, gaddavír, plast og spýturusl til að girða skikann af og búa til hýbýli. Heimili. Það er bárujárn á þakinu og steinar ofan á til að halda því á sínum stað. Varla vatnshelt. Sumir eiga líka bárujárn sem byggingarefni en það er dýrara en plast og fúnar spýtur. Yfirleitt er ekkert vatn inni í húsunum en þó kannski einn krani úti við, það eru engar klóaklagnir þótt klósettið sé inni og gólfið er moldargólf. Ég steig ofan í mannaskít úti á götu. Engir gluggar. Stolið heimatilbúið rafmagn úr vírahrúgum hér og þar. Hundar og kettir sem skíta og míga inni sem úti. Fnykur. Grasserandi óþrifnaður og moskító í massavís. En flestir í hreinum fötum. Alveg ótrúlegt hvernig þeim tekst það.
Lóðin kostar um 70 þúsund kr. íslenskar. Án pappíra að sjálfsögðu og engin vissa fyrir því að einhver stór og ríkur komi einn daginn og ryðji öllum í burtu og byggi eitthvað almennilegt. Með heimatilbúnu "húsi" kostar pakkinn um 130 þúsund íslenskar. Sem er ekki mikill peningur. En frekar myndi ég kaupa tjald og planta vinum mínum í það úti í móa eða borga ævilanga leigu í herbergi með steyptum veggjum og hreinlætisaðstöðu í glæpahverfinu heldur en nokkru sinni hleypa þeim á svona stað.

Göturnar eru svo mjóar að það var varla hægt að keyra á bílnum, enda á enginn farartæki þarna. Klóakholur hér og þar - og ég steig einmitt í eina í myrkrinu

Gengum framhjá þessu húsi sem var augljóslega til sölu: "Se vende". Við kíktum inn af forvitni og við blöstu verstu heimilisaðstæður sem þið getið ímyndað ykkur
heimili
15 fermetrunum skipulega deilt niður á 7 manns
Klósettið og við fengum að heyra að það væru góð kaup í þessu húsi þar sem þar væri sko krani með rennandi vatni - þetta er s.s. eldhúsið, klósettið og þvottaaðstaðan - engin sturta samt
Þetta er í öðru húsi, 20 fm og vel hlaðið
klósett, ískápur og eldunaraðstaðan
Comments:
Skrifa ummæli
