<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, október 06, 2007

Í dýragarðinum 

Við fórum í dýragarðinn hér um daginn og Vera hafði gaman af. Hún vildi auðvitað hanga mest allan tímann fyrir framan ljónin enda forfallinn ljónaaðdáandi - ljónið sjálft. Þetta var nú ansi sorglegur dýragarður og dýrin litu flest út fyrir að vera fyrir löngu búin að missa vitið, en Veru fannst samt gaman og það er það sem telur. Sjálf er ég svo lítil dýramanneskja eins og þeir sem þekkja mig vita (fíla samt feldina á gólfinu heima og í fatnað og þannig!) og mér fannst þetta eiginlega jafn leiðinlegt og Húsdýragarðurinn, því hef ég ekki hug á að birta hér myndir af dýrum heldur bara okkur Veru, enda við dýrslega sætar.
Ef þið kíkið vel er páfagaukur fyrir aftan okkur! - og fiðrildi á bolnum mínum

Vera ákvað að þetta væri Samson úr Óbyggðunum (Disney mynd) og þarna vildi hún bara vera allan tímann. Ljónið rétt svo blikkaði augunum

Þetta var heitur dagur og hér er alltaf tími fyrir ís


Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker