fimmtudagur, október 04, 2007
Þakkarorð til ykkar

"Managua Nicaragua 03-10-07
Frá; Eunise Gutiérrez Tapia
Virðulegu dömur og herrar, ég sendi ykkur mínar einlægustu óskir um að þið hafið það sem allra best, með vinum ykkar og ættingjum.
Ég hef beðið Frú Erlu að þýða þessi orð til ykkar þar sem ég veit ekki hvernig ég get öðruvísi þakkað ykkur fyrir alla þá aðstoð sem þið hafið veitt mér og dóttur minni Islene. Það hefði virkilega ekki verið mögulegt ef við hefðum ekki kynnst Erlu, en því má þakka mágkonu minni og guði. Takk fyrir einlæga aðstoð ykkar en vegna hennar er ég mjög glöð í dag þar sem dóttir mín er við mjög góða heilsu.
Ég kveð ég ykkur með þeim orðum að ég verð ykkur að eilífu þakklát."
Comments:
Skrifa ummæli